Kilbeggan – öndvegisviskí frá Írlandi

Fáir efast um ágæti skoskra maltvískía enda njóta þau almennt mestra vinsælda meðal viskíunnenda. Japönsk viskí eru fágunin uppmáluð og mátulega exótísk, og amerískir búrbónar eru í senn hæfilega hrjúfir og sætir á bragðið. Í dag ætlum við að ræða um írskt viskí og það sem gefur því ákveðna sérstöðu á markaðnum. Það er nefnilega einhver heimilisleg og heiðarleg auðmýkt í viskíi frá Írlandi, þar sem heimaalið fólk býr til vískí eftir aldagömlum aðferðum, með báða fætur á jörðinni og ómælda virðingu fyrir hefðinni. Þannig viskí er Kilbeggan – viskíhúsið sem á í fórum sínum elsta viskígerðarleyfið á öllu Írlandi og hefur hlotið flest verðlaun írskra viskía þar í landi fyrir framleiðslu sína.

 

Viskígerðin í Kilbeggan á sér langa sögu enda fyrst sett á laggirnar árið 1757. Fyrirtækið skipti nokkrum sinnum um hendur næstu 200 árin eða svo og framleiddi viskí sleitulaust á meðan, þrátt fyrir ýmis áföll. Þar á meðal var Bindindishreyfingin mikla sem stofnuð var árið 1838 og mjög sópaði að á árunum í kjölfarið á Írlandi. Náði hreyfingin slíku fylgi að stór hluti Íra sór bindindi fyrir lífstíð á nokkrum árum og afleiðingarnar voru lamandi fyrir viskígerð á Írlandi almennt. Kreppan mikla á árunum í kringum 1930 hafði líka erfið áhrif á Kilbeggan og svo fór loks að framleiðslu var hætt árið 1954. Á 200 ára afmælinu, 1957, lokaði fyrirtækið alveg.

 

Næstu árin drabbaðist húsakostur viskígerðarinnar niður og lá undir skemmdum, heimamönnum til sárrar hryggðar. Þeir tóku sig loks til 25 árum seinna, árið 1982, og efndu til samskota í sveitinni til að standa straum af viðgerð og opnun hússins, með hjálp sveitastjórnarinnar. Fyrst um sinn var Kilbeggan aðeins minjasafn um viskígerð fyrri tíma en neistinn hafði verið tendraður. Öðrum aldarfjórðungi síðar, árið 2007, hófst viskígerð aftur á staðnum undir fornfrægu merki Kilbeggan og árið 2014 komu fyrstu flöskurnar af Kilbeggan Irish Whiskey, frá hinu endurreista viskíhúsi, á markaðinn.

 

Þó nýir tímar séu gengnir í garð og ferskir vindar blási um Kilbeggan er hefðin og sagan hvarvetna sýnileg í viskígerðinni. Kopar-eimarinn sem notaður er Í Kilbeggan er sá elsti í heimi, og viskíð er framleitt eftir ævagömlum aðferðum uns það er sett á eikartunnur og „látið sofa“ eins og heimamenn kalla það uns það er tilbúið, og englarnir hafa tekið sinn skerf. Þar er átt við hina óhjákvæmilegu uppgufunarfyrningu viskís á tunnum.  Minnst 2 prósent af vökvanum gufar nefnilega upp yfir árin meðan á þroskun stendur og það er skerfur englanna. Enn í dag er írskt bygg notað til viskígerðarinnar, og gamla vatnsmylluhjólið við aðalbygginguna, sem áður var notað til þreskingar á korninu, snýst enn eins og það hefur gert frá því á 19. öld.

 

Kilbeggan er ungt en bragðmikið viskí, og best fer á því að njóta þess í glasi sem andar vel og leyfir hinum gullna vökva að vakna sæmilega. Í nefi er það milt og ljúft þar sem hnetukeimur og bygg koma saman ásamt mildum keim af móreyk. Í munni hefur Kilbeggan góða fyllingu með sætukeim sem minnir á hunang og vanillu. Eikartónninn af ámunum kemur svo fram í þægilegu eftirbragðinu.

 

Eins og tilfellið er með allt vískí er það einfaldlega smekkur hvers og eins sem ræður hvernig á að njóta Kilbeggan. Sumir munu kjósa það ósnert í glasinu, aðrir gefa því litla vatnslögg til að mýkja það og enn aðrir hella Kilbeggan út á ísmola eða tvo. Eina lögmálið er að njóta þess eins og þér finnst það best persónulega.

Hvernig væri að prófa?

Kilbeggan

Stærð: 700 ml

Lýsing: Gullið. Þurrt, meðalfylling. Ljóst korn, ristuð eik, létt krydd.

Verð: 6449 kr.

 

Kilbeggan 8 ára

Stærð: 700 ml

Lýsing: Gullið. Ósætt, mjúk meðalfylling. Vanilla, eik, blómlegt. Heitt, langt eftirbragð.

Verð: 7799 kr.

Share Post