Ostafyllt pasta í bragðmikilli tómatsósu

Uppskrift: Linda Ben

Hráefni:

2 pakkar ferskt tortellini fyllt með osti

1 ½ box sveppir

1 stór rauð paprika

1 dós niðursoðnir tómatar

1 laukur

2 hvítlauksrif

1 krukka tómatpastasósa (val)

salt og pipar

Parmesan ostur

Ferskt basil

Aðferð:

Setjið vatn í meðal stóran pott ásamt olíu og salti.

Skerið laukinn smátt niður, steikið hann á pönnu með olíu þangað til hann verður gullin brúnn.

Skerið sveppina niður og setjið út á pönnuna og steikið.

Skerið paprikuna og hvítlaukinn niður og steikið með hinu á pönnunni.

Hellið niðursoðnu tómötunum á pönnuna, ef þeir eru heilir er gott að skera þá niður fyrst.

Ef þið viljið hafa mikla sósu með pastanu þá helliði lítilli krukku af tómat pastasósu útá, smakkið til með salti og pipar. Látið sjóða saman á vægum hita á meðan þið setjið pastað í pottinn og það verður tilbúið.

Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á umbúðunum.

Berið pastað fram með sósunni, ferskri basil og nóg af parmesan osti.

Vinó mælir með Adobe Reserva Chardonnay með þessum rétt.