Pizzur og vín sem passa vel saman!

 

Forsíðu mynd & grænmetispizza

 

Það er kúnstugt bæði og gaman að para sælkeramat og vín saman, og það getur orðið sérstaklega áhugavert með mat sem felur í sér fléttu mismunandi bragðtóna.  Þar er pizzunni sannarlega rétt lýst.  Pizzan er til í óteljandi útfærslum og samsetningum þar sem við sögu koma álegg úr öllum mögulegum bragðflokkum – stundum saman í torkennilegri bragðtónasinfóníu sem gengur upp.  Hvernig má það svo vera?  Nú, af því þér finnst hún ganga upp.  Þannig er það bara.

 

Sama er að segja um pörunina á eftirlætis pizzunni þinni við gott vín.  Ef þér finnst þessi pizza og hitt vínið passa saman þá er það ekki flóknara en svo.  En svo geta líka nýjir heimar töfrandi samsetninga opnast fyrir manni þegar ákveðnar samsetningar eru prófaðar.  Hér deilum við með ykkur algengar pizzur við vín sem við ábyrgjumst að passi vel saman!

 

Pizza Margaríta & Rósavín

 

Margarita pizza

 

Þetta er í huga margra sú einfaldasta af pizzum en einmitt þess vegna skína bragðtónarnir nánast óhindrað í gegn á bragðlaukunum; tómatsósan, mozzarella-osturinn og fínsaxaða ferska basilikan sem er sáldrað yfir.  Til að mæta þessari samsetningu mælum við með svölu rósavíni; það ræður vel við hið beinskeytta bragð Margarítunnar enda fer í rósavíninu saman frískleiki hvítvíns og létt fylling rauðvíns.

Vinó mælir með: Adobe Reserva Rose Organic 1.999 kr.

Lífrænt rósavín frá Chile, fallega laxableikt á lit, létt fylling og ósætt. Jarðarber og lauf.

 

Pepperoni Pizza + Chianti

 

Pepperoni Pizza

 

Pepperoni er, eins og öllum er sjálfsagt kunnugt, verulega bragðmikil og sterk pylsa, og þar sem hún er ákaflega fiturík dreifist bragðið af henni bókstaflega út um alla pizzuna við bökunina.  Það blasir því við að hér er þörf á nokkuð öflugu víni til að ráða við pizzuna og mælum við með góðum Chianti frá heimalandi pizzunnar.

Vino mælir með: Melini Chinati Governo 2.299 kr.

Gott Chianti- vín, fallega djúp rúbínrautt á lit, meðal fylling, lítil tannín.  Kirsuber, leður, lakkrís og möndlur.

 

Pizza Hawaii + Riesling

 


hawai

 

 

Nú erum við með alvöru verkefni – pizza með skinku og ananas!  Hér er vænlegast að leita í hvítvín og einkum í mátulega sætt Riesling.  Sýrnin í Riesling-þrúgunni klýfur fituna í svínakjötinu og skefur hana af bragðlaukunum, og sætan passar frábærlega með yfirgnæfandi sætukeimnum af ananasnum.  Sérdeilis skothelt kombó.

Vinó mælir með: Smetterling Riesling 1.499 kr.

Ferskt hvítvín frá Þýsklandi.  Fölgult.  Hálfsætt, létt fylling, fersk sýra.  Epli, pera.

Grænmetispizza + Sauvignon Blanc

 

Forsíðu mynd & grænmetispizzaEf þú ert í grænu deildinni þegar kemur að pizzum, hvort sem þú kýst grænmetisálegg eða einfaldlega þunnbotna pizzu með salati á borð við rucola eða spínat, þá er afar sterkur leikur að leita í frísklegt hvítvín með “grænum” bragðnótum, sýrni og örlitlum sítrus.  Sauvignon Blanc er einna öruggasta valið með “grænni pizzu”.

Vino mælir með: Adobe Reserva Sauvignon Blanc 1.999 kr.

Föllímónugrænt.  Létt fylling, ósætt, fersk sýra.  Ljós ávöxtur, sólberjalauf, sítrus.

Share Post