Rósavín í sumar

Sumarið er kjörtími rósavínanna sem njóta nú sívaxandi vinsælda hér á landi rétt eins og í löndunum í kringum okkur.
Rósavín búa yfir þeim eiginleikum að vera frískleg og henta þannig vel í sólinni en einnig eru þetta ágætis matarvín.
Léttir réttir eru þá yfirleitt fyrir valinu, fiskur og bragðmikil salöt. Rósavín henta líka einkar vel með ýmsu grænmeti.
Bakkar fullir af skinku, bragðgóðum pylsum og ostum af ýmsum tegundum henta til dæmis vel með þurru og fersku rósavíni.
Á meðan millisæt rósavín parast vel með sushi og sterkum mat, eins og tælenskum og kínverskum. Grillaður lax hentar líka afar vel með rósavíni.
Það er bara um að gera að prófa sig áfram og svo má ekki gleyma því að rósavín er líka gott að drekka eitt og sér.

Hérna eru nokkrar rósavínstegundir í uppáhaldi hjá okkur sem við mælum með fyrir sumarið.

Adobe Reserva Rose Organic 1.999 kr.

Lífrænt rósavín frá Chile, fallega laxableikt á lit, létt fylling og ósætt. Jarðarber og lauf. Prófið með t.d. með grilluðum humar.

Adobe Reserva Rose Organic 5.999 kr.

Fallega ljóslaxableikt á lit. Létt fylling, ósætt, mild sýra. Jarðarber. Yndislegt lífrænt rósavín í kassa, frábært í útileiguna eða bústaðinn í sumar.

Pares Balta Ros de Pacs 1.999 kr.

Lífrænt rósavín frá Katalóníu á Spáni. Fallega ljós jarðaberjarautt á lit, ósætt, létt fylling og sýruríkt. Fersk hinder og rifsber. Prófið með sumarlegu salati með kjúkling.

Cune Rioja Rosado 1.999 kr.

Yndislegt rósavín frá Rioja á Spáni. Fallega ljósjarðarberjarautt, létt meðalfylling, ósætt og fersk sýra. Jarðarber, hindber, laufkrydd. Prófið með góðu pasta salati.

Muga Rioja Rosado 2.599 kr.

Fágað og glæsilegt rósavín frá Muga. Föl laxableikt á lit, ósætt, fersk sýra. Ferskja, hindber, suðrænn ávöxtur. Prófið með góðum pastarétti.

 

Share Post