Adobe Chardonnay Reserva 2015

4star

Adobe Chardonnay Reserva

Lýsing: Ljóssítrónugult. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra. Sítrus, suðrænn ávöxtur, ananas.

Passar vel með: Sjávarréttum, kjúkling og pastaréttum.

Vinotek segir:

Chilenska vínhúsið Bodegas Emiliana,  er einn stærsti framleiðandi lífrænt tæktaðra vína í heiminum, þar á meðal Adobe-línunnar, en alls ræktar vínhúsið vínvið lífrænt á tæplega þúsund hektörum. Hér er það nýjasti árgangurinn af hvítvíninu úr Chardonnay-þrúgum sem ræktaðar eru í héraðinu Casablanca. Þetta er fínlegur en líka sprækur nýjaheims-Chardonnay, sætur sítrus, limebörkur, ferskjur, ananas og þroskaður mangó, vanillusykur. Góð sýra í munni, vínið er ungt og þægilegt.

Share Post