Alphart Neuburger Hausberg 2014

4star

Alphart Neuburger 2014

Vinotek segir:

Weingut Alphart hefur getið sér orð sem einhver athyglisverðasti hvítvínsframleiðandi Austurríkis en vínhúsið á um 20 hektara af ekrum í Thermenregion suður af Vín. Ekki síst vekja athygli vín Alphart úr sjaldgæfum þrúgum á borð við Neuburger og Rotgipfler.

Neuburger er blendingur úr Roter Veltliner og Sylvaner og vín úr þessari þrúgu koma virkilega á óvart.

Sítrusbörkur, þroskaðar perur, fínlegt og fágað. 2.799 krónur. Þægilegt vín sem hentar með margvíslegum sjávarréttum og ætti að vera afbragð með sushi.

Share Post