Clacson Sauvignon Blanc 2016  

 

clacson hvítvín

Vinotek segir;

Svona úr fjarlægð virðist þetta vera vín frá fjarlægum heimsálfum, nafnið og hönnun flöskumiðans vekur upp þannig hughrif. Þegar maður fer að rýna betur í þetta kemur hins vegar í ljós að hér er á ferðinni rammfranskur Sauvignon Blanc – Pays d’Oc nánar tiltekið frá Miðjarðarhafssvæðinu Languedoc. Fölgulur litur, fersk angan, ferskjur og blóm, greipbörkur, grösugt, ferskt og skarpt í munni. Ansi sumarlegt og snoturt vín. 1.999 krónur. Mjög góð kaup. Með t.d. austurlenskum réttum.

Share Post