Vicar‘s Choice Sauvignon Blanc 2015

4star

saint-clair-2015

Vinotek segir;

Víngerðin St. Clair í Marlborough á Nýja-Sjálandi er ekki gömul víngerð. Það eru einungis rétt rúmir tveir áratugir síðan að fyrstu vínin sem að framleidd voru undir merkjum St. Clair litu dagsins ljós. Á þeim árum sem síðan er liðið hefur þessum vínum stöðugt vaxið ásmegin og þá ekki síst Sauvignon Blanc-vínunum.

Vicar’s Choice-línan er með betri kaupunum frá St. Clair, fersk, vel gerð og á góðu verði. Þetta er brakandi ferskur og ungur Sauvignon, súrsæt Granny Smith-epli, lime, lime-börkur og ástaraldin, í munni skarpur og sætur ávöxtur, míneralískt og þurrt.

2.495 kr. Frábær kaup.

 

Víngarðurinn Vín og Fleira segir;

Þarna er komið afar dæmigert Sauvignon Blanc frá Nýja-Sjálandi, stútfullt af krydduðum ávexti og sjarmerandi framkomu. Það er ljós-gulgrænt að lit með ríflega meðalopna angan af sítrusávöxtum, stikilsberjum, blautu mjöli, krömdu sólberjalaufi, hvítum blómum og ögn af austurlenskum ávöxtum og aspas. Flott og ferskt. Í munni er það þurrt og sýrurikt með mjög gott jafnvægi og ferskan bragðprófíl þar sem finna má sítrónu, sti…kilsber, greipaldin, læm aspas, peru og austurlenska ávexti. Það endist vel og þótt það sé ekki flókið hefur það skýr upprunaeinkenni og framliggjandi ávöxt sem ég kann vel að meta. Hafið með allskonar bragðmeiri grænmetisréttum, krydduðum fiskréttum og asíska eldhúsinu. Verð kr. 2.499.- Mjög góð kaup.

Skoða vöru í Vínbúðinni

Share Post