Elegant rauðvín frá einu elsta vínhúsi Rioja
Spænska vínhúsið Cune hefur löngum verið eitt það fyrirferðamesta og mikilvægasta í Rioja og framleiðir mörg af betri vínum héraðsins. Helgarvínið Cune Reserva er eitt þeirra vína. Fallega kirsuberjarautt á lit. Vín með meðalfyllingu, ferska sýru og miðlungstannín. Skógaber, barkakrydd, lyng og eik. Frábært vín