Einfalt og fljótlegt kjúklingasalat
Uppskrift: Linda Ben
Hráefni:
1 poki veislusalat (100g)
2 kjúklingabringur
1 stórt avókadó eða 2 lítil
1/2 agúrka
1 krukka fetaostur
1/2 granatepli
Aðferð:
- Skolið salatið og þerrið í eldhúspappír eða salat vindu. Raðið salatinu á disk.
- Skerið elduðu kjúklingabringurnar niður í bita stóra bita og raðið á salatið. Ef þið notið hráar kjúklingabringur þá skeriði þær niður í bita, kryddið með uppáhalds kjúklingakryddinu ykkar og steikið þær svo þegar til bitarnir eru eldaðir í gegn.
- Skerið avocadóið og agúrkuna niður í bita stóra bita og raðið yfir.
- Setjið fetaostinn yfir salatið með olíunni.
- Takið fræin úr hálfu granatepli og raðið yfir salatið.
Vínó mælir með Pares Balta Blanc De Pacs með þessum rétt.