Lax og jarðaberjarsalsa
Uppskrift: Linda Ben
Hráefni:
- 800g lax
- salt
- sítrónu pipar
- ½ krukka fetaostur
- franskar baunir
- 10 jarðaber
- 1 stk vorlaukur
- safi úr ½ lime
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 200ºC.
- Skerið laxinn í bita og kryddið hann vel með salti og sítrónu pipar eftir smekk.
Setjið franskar baunir með í eldfasta mótið, kryddið þær líka örlítið.
Setjið fetaost yfir laxinn og frönsku baunirnar, bakið inn í ofni í um það bil 20 mín eða þangað til laxinn er eldaður í gegn. - Á meðan laxinn er inn í ofninum útbúið þá jarðaberja salsað með því að skera jarðaberin í bita og vorlaukinn smátt niður.
Blandið því saman í skál og kreystið hálfa lime yfir.
Vinó mælir með Muga Rósavín með þessum rétt.