Þeytið rjóma með 1 msk sykri og 1 tsk vanillu sykri.
Rétt áður en rjóminn er orðinn stíf þeyttur, bætið við 1 tsk af Stroh rommi útí
Stroh Kakó:
Blandið kakó dufti, dökkusúkkulaði, mjólk og 2 msk sykur og 2 tsk vanillusykur í pott og hrærið saman við vægan hita.
Takið pottinn af hitanum og bætið 2-4 cl af Stroh rommi útí pottinn og hrærið.
Setjið sitt hvort espresso skotið í hvorn bollan. Hellið kakó blöndunni í bolla eða glas og bætið svo rjómanum ofan á. Fallegt að skreyta með smá saltri karamellu en því má sleppa.