Espresso Martini
Hráefni
- 100 ml Russian Standard Vodka
- 50 ml Galliano Vanilla líkjör
- 1 einfaldur espresso
- 25 ml sýróp með kaffibragði (má nota venjulegt líka)
- Klakar
Aðferð
- Hellið upp á einfaldan espresso í stóran bolla og setjið nokkra klaka ofan í bollann.
- Setjið klaka í glösin á meðan kokteillinn er hristur.
- Setjið öll innihaldsefni í kokteil hristara ásamt klökum og hristið mjög vel.
- Takið klakana úr glösunum og hellið kokteilnum í glösin í gegnum fínt kokteilsigti, gott að hella hratt í glösin til að ná allri froðunni.
- Skreytið með heilum kaffibaunum.