Grænn og vænn gúrku gin kokteill
Uppskrift fyrir tvo drykki
- 1 gúrka
- 60 ml Botanist gin
- 1 lime
- 200 ml tonic vatn
Aðferð:
- Skerið hörðu endana af gúrkunni og setjið hana svo í blandara svo hún verði að safa. Sigtið safann svo hann verði tæju laus.
- Fyllið glösin af frekar stórum klökum. Fyllið glösin upp 2/3 af gúrkusafa, setjið 30 ml af gini í hvert glas, kreystið safann úr ½ lime í hvort glasið og fyllið svo upp með tonic vatni. Skreytið með myntu.