Saint Clair Vicar’s Choice Pinot Gris Riesling Gewurztraminer 2015
Vínótek segir;
Þrúgurnar Pinot Gris, Riesling og Gewurztraminer eiga það allar sameiginlegt að vera meginþrúgur Alsace-héraðsins í norðausturhluta Frakklands. Það vantar einungis eina af hinum „göfugu“ þrúgum Alsace (Cépages Noble) nefnilega Muscat í þessa nýsjálensku blöndu frá Saint Clair.
Vínið hefur bjartan, ljósgulan lit og nef þess er ferskt og aðlaðandi, sætur sítrusbörkur, mangó, hunang og steinolía, feitt, ferskt og nokkuð þurrt í munni.
2.299 krónur. Frábær kaup. Vín með t.d. graflaxi.