Heitt súkkulaði með Stroh og sykurpúðum
Hráefni:
4 cl Stroh
2 msk. sykur
2 tsk. vanillusykur
4 msk. kakó
40 g dökkt súkkulaði
400 ml mjólk
Aðferð:
Blandið kakó dufti, dökkusúkkulaði, mjólk, 2 msk sykur og 2 tsk vanillusykur í pott og hrærið saman við vægan hita.
Takið pottinn af hitanum og bætið 4 cl af
Stroh rommi útí pottinn og hrærið.
Hellið kakó blöndunni í bolla og berið fram með sykurpúðum.