Basil Gimlet kokteill helgarinnar
Hráefni
- 30 ml gin
- 5-6 stór basil lauf
- Safi úr ½ lime
- 50 ml sykur síróp
- 2 dl klakar
Sykur sýróp
- 2 dl sykur
- 3 dl vatn
Aðferð
- Byrjað er á að gera sykursíróp (má gera daginn áður t.d., geymist vel í kæli í lokuðum umbúðum). Setjið sykur og vatn í pott, hitið þar til öll sykurkornin eru bráðnuð saman við, hellið sykursírópinu á flösku eða annað ílát og kælið.
- Setjið gin og basil lauf í kokteilhristara, merjið laufin saman við ginið. Kreistið ½ lime út í, setjið sykur síróp og klaka í kokteilhristarann og hristið vel og kröftuglega saman.
- Hellið í gegnum sigti í kokteil glas og skreytið með basil laufum.