Kjúklingavængir
Uppskrift: Karen Guðmunds
Hráefni
- 1 pakki af kjúklingavængjum
- 2 msk salt.
Sósan
- 1 tsk olía
- 1 msk vel saxað efnifer
- 3 msk hvítlauk, vel saxað
- 1/4 bolli mirim (kínverskt vín)
- 1/4 bolli soja sósa
- 1/4 bolli appelsínudjús (úr ferskri appelsínu)
- 3-4 msk rautt chili paste sriracha (fer pínu eftir smekk)
- 3 msk hunang
- 2 msk rice wine vinegar
- 1 tsk sesame olía
- appelsínubörkur af einni appelsínu
Innihaldsefni fyrir deigið
- 1/2 bolli hveiti
- 1/2 bolli corn starch
- 1/3 bolli vatn
- 1/2 tsk salt
Aðferð:
Stillið ofnin á 180F.
Setjið kjúklingavængina í miðlungsskál og saltið. Leggjið til hliðar.
Deigið:
Blandið öllu innihaldsefnum saman þar til blandan verður vel blönduð saman.
Setjið smjörpappír á ofnplötu, leggið grind á ofnplötuna.
Sósan:
Byrjið á því að steikja hvítlauk og engifer saman uppúr olíu á miðlungsheitri pönnu. Bætið víninu saman við og leyfið að sjóðast í 2 mínútur, munið að hræra reglulega í sósunni.
Hitið olíu í potti yfir miðlungsháum hita og leyfið olíunni að ná 180 gráðum áður en þið setjið vængina ofaní.
Aðferð:
Veltið vængjunum vel uppúr deiginu og setjið varlega ofan í olíuna. Djúpsteikjið í 7 – 9 mínútur eða þar til vængirnir eru orðnir gullbrúnir og krispy.
Endurtakið þar til allir vængirnir eru tilbúnir.
Raðið vængjunum á ofnplötuna og leyfið að bíða inn í ofni á meðan þið klárið að djúpsteikja alla vængina.
Þegar þið eruð búin að djúpsteikja alla vængina, leyfið þeim að vera inn í ofni í 15 mínútur.
Hitið sósuna aðeins upp, og setjið svo vængina ofan í sósuna og skreytið með vorlauk og sítrónu.