Cointreau Vitamin Booster
Hráefni:
4 appelsínur
2 greipávöxt
75 ml appelsínusafi
75 ml vatn
75 g sykur
1 vanillustöng
8 cl Cointreau
Aðferð:
- Skerið vanillustöng í tvennt eftir endilöngu og skafið fræin innan úr henni.
- Hellið appelsínusafanum, vatni, sykri og vanillufræjum saman í pott og hitið að suðu.
- Hellið blöndunni í skál og leyfið henni að kólna.
- Bætið Cointreau saman við og kælið inn í ísskáp.
- Afhýðið appelsínurnar og greip ávöxtinn og kælið inn í ísskáp.
- Setjið ávöxtinn í fallegar skálar, hellið blöndunni yfir og skreytið með myntu.