Mið-Austurlensk kjúklinglæri með bulgur salati og hvítlaukssósu
Fyrir 2
Hráefni
Kjúklingalæri (skinn & beinlaus), 500 g
Shawarma krydd, 10 g / Kryddhúsið
Bulgur, 120 ml
Kóríander, 10 g
Steinselja, 15 g
Lítill rauðlaukur, ¼ stk
Pistasíuhnetur, 25 g
Granateplafræ, 30 g
Fetaostur í kryddlegi, 30 g
Grísk jógúrt, 60 g
Majónes, 60 g
Sykur, 1 tsk
Borðedik, 1 msk
Sítrónusafi, 0,5 tsk
Hvítlaukur, 2 g
Salt & pipar
Undirbúiningur
- Setjið kjúklingalæri í skál ásamt shawarma kryddi og um 1.5 tsk af flögusalti. Blandið vel saman og látið marinerast í amk 1 klst.
- Stillið ofn á 180 °C með blæstri. Dreifið kjúklingalærunum yfir ofnpötu með bökunarpappír og bakið í 30 mín í miðjum ofni.
- Hrærið saman grískri jógúrt, majónesi, sítrónusafa, sykur og ediki. Saxið 5 g af steinselju og pressið hvítlauk og hrærið saman við sósuna. Smakkið til með salti og ríflegu magni af svörtum pipar.
- Sjóðið bulgur eftir leiðbeiningum á pakka og færið svo í skál.
- Saxið kóríander, restina af steinselju, pistasíuhnetur og rauðlauk. Hrærið saman við bulgur ásamt granateplafræjum og fetaosti. Smakkið til með salti.
- Berið fram með naan brauði og fersku salati.