Lax í hvítlauks rjómasósu með sólþurkuðum tómötum
Hráefni
800 g lax
2 msk ólífu olía
½ laukur
4-5 hvítlauksgeirar
1 appelsínugul papríka
150 g sólþurrkaðir tómatar
180 g kirsuberjatómatar
300 ml rjómi
100 g spínat
Salt og pipar
Aðferð
- Byrjið á því að krydda laxinn með salt og pipar, setja olíu á pönnuna og steikið fiskinn með roðið niður þar til hann er u.þ.b. eldaður í gegn, það er gott að setja lok á pönnuna svo hann eldist örlítið hraðar. Takið laxinn af pönnunni en haldið olíunni og því á pönnunni áfram.
- Skerið laukinn smátt niður og steikið hann á pönnunni, bætið við olíu eftir þörfum. Skerið hvítlaukinn og paprikuna líka niður og steikið. Skerið sólþurrkuðu tómatana niður og bætið þeim á pönnuna ásamt heilum kirsuberja tómötum.
- Bætið rjóma á pönnuna ásamt spínatinu og blandið öllu saman. Kryddið með salt og pipar og leyfið að malla í smá stund. Setjið laxinn aftur á pönnuna og hitið hann upp. Berið fram með hýðis hrísgrjónum.