Ofnbakaður brie með brómberja og hunangs toppi
Hráefni
Brie
1 ½ dl frosin brómber
1 ½ msk hlynsíróp
½ dl pekan hnetur
Fersk brómber
Snittubrauð
Aðferð
- Stilltu ofninn á 200°C og undir&yfir.
- Settu ostinn í lítið eldfast mót og settu inn í ofn í 20 mín eða þar til osturinn er orðinn vel bólginn og mjúkur.
- Á meðan osturinn er inn í ofni, settu frosin brómber í pott á lágan hita ásamt hlynsírópi, hrærðu varlega í þar til berin eru bráðnum og svolítill safi hefur myndast af berjunum. Takið ostinn út úr ofninum, hellið brómberjunum yfir ásamt safanum.
- Skerið pekan henturnar niður og dreifið yfir ostinn.
- Berið fram með snittubrauði og ferskum brómberjum.