Ljúffengt sveppa risotto
Hráefni
500 g kastaníu sveppir (má líka blanda saman við portobello sveppi)
1 laukur (a.t.h. skipta í tvennt, notaður 2x í uppskriftinni)
100 g smjör (a.t.h. skipta í tvennt, notaður 2x í uppskriftinni)
U.þ.b. 4 msk trufflu olía (a.t.h. skipta í tvennt, notaður 2x í uppskriftinni)
ferkst timjan
3 ½ dl risotto hrísgrjón
2 dl hvítvín (gott að nota Chardonnay)
1000 ml vatn
3 tsk kjúklingakraftur frá Oscar
1 dl rifinn parmesan ostur (meira til að bera fram með)
Aðferð
- Kveikið á ofninum og stillið á 200°C.
- Skerið sveppina niður í sneiðar og setjið á bökunarplötu með smjörpappír.
- Skerið laukinn í helming, skerið annan helminginn niður í þunnar sneiðar og dreifið yfir sveppina á bökunarplötunni.
- Bræðið smjörið og hellið yfir sveppina og laukinn, hellið einnig 2 msk af trufflu olíu yfir, klippið niður ferskt timjan og dreifið yfir. Bakið inn í ofni i 25 mín eða þar til sveppirnir og laukurinn er orðinn mjúkur í gegn.
- Setjið 2 msk af trufflu olíu á pönnu og stillið á meðal hita.
- Skerið hinn helminginn af lauknum smátt niður og steikið þar til hann er byrjaður að mýkjast.
- Setjið þá hrísgrjónin út á pönnuna og steikið í 1 mín. Bætið þá hvítvíninu út á og steikið þar til mesti vökvinn er gufaður upp, hrærið stanslaust í. Bætið þá 250 ml vatni út á ásamt 1 tsk af kjúklingakrafti, hrærið stanslaust í og leyfið að malla þar til mest allur vökvinn er gufaður upp. Endurtakið þar til búið er að setja 1000 ml af vatni og 3 tsk af kjúklingakrafti, þá ættu hrísgrjónin einnig að vera orðin mjúk og góð.
- Rífið parmesan ost niður og bætið út á risottoið, hrærið öllu saman.
- Setjið 2/3 af sveppunum og lauknum út á, ásamt restinni af smjörinu og blandið saman.
- Skiptið risottoinu á milli diska, setjið restina af sveppunum og lauknum yfir, ferskt timjan og rífið parmesan ost yfir.