Pastasalat með hunangs sinneps dressingu
Hráefni fyrir pastasalat
300 g pasta slaufur
3 stk fullelduð kjúklingalæri (eða annað kjúklingakjöt)
1 rauð paprika
½ gúrka
1 dl svartar ólífur
2 dl rauð vínber skorin í tvennt
180 g litlir tómatar
Hungangs sinneps sósa (uppskrift hér fyrir neðan)
Parmesan ostur eftir smekk
Salt og pipar eftir smekk
Hráefni fyrir Hunangs sinneps dressingu
Safi úr 1 sítrónu
½ msk hágæða Toscano Filippo Berio ólífu olía
1 msk hvítvínsedik
2 msk hunang
2 msk dijon sinnep
1 – 2 hvítlauksgeirar (1 ef stór, 2 ef litlir)
2 – 3 msk majónes
Salt og pipar eftir smekk
Aðferð
- Eldið pastað samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
- Skerið kjúklinginn, paprikuna, gúrkuna, vínberin og tómatana niður og setjið í stóra skál (ekki sömu skál og þið ætlið að bera matinn fram í) með elduðu pastanu, setjið ólífurnar út á líka og blandið öllu svolítið saman.
- Setjið öll innihaldsefnin fyrir dressinguna saman í blandara, byrjið á að setja hóflegt magn af salti og pipar. Blandið saman og smakkið til með meira af salti og pipar.
- Hellið sósunni út á skálina með pastanu í og blandið öllu saman. Hellið öllu í fallega skál og rífið parmesan ost yfir.