Tagliatelle með ítalskri kryddpylsu og sveppum
Fyrir 2-3
Hráefni
Ítölsk grillpylsa (sterk krydduð), 300 g / Tariello, fæst frosin í Melabúðinni
Eggja tagliatelle, 250 g
Laukur, 100 g
Sveppir, 100 g
Hvítlaukur, 2 rif
Tómatar, 1 dós / 400 g
Hvítvín, 1 dl
Kjúklingakraftur, 1 tsk
Provance krydd, 1 tsk
Hvítlauksduft, 0,5 tsk
Rjómi, 80 ml
Parmesan ostur, 20 g
Steinselja, 8 g
Klettasalat, 30 g
Aðferð
- Takið utan af pylsunum og stappið kjötið með gaffli.
- Saxið lauk, rífið eða skerið sveppi í litla bita og pressið hvítlauk.
- Hitið olíu á pönnu eða í steypujárns potti við meðalháan hita og steikið sveppina þar til þeir eru farnir að brúnast aðeins. Lækkið hitann ögn, bætið lauk út á ásamt smá salti og steikið þar til laukurinn er orðinn glær og mjúkur (varist að brúna laukinn), bætið pressuðum hvítlauk út á og steikið áfram í 1 mín til viðbótar.
- Hækkið hitann og bætið kjötinu út í. Steikið og hrærið reglulega í þar til kjötið er fulleldað og aðeins byrjað að brúnast. Bætið hvítvíni út í og látið sjóða niður í smástund.
- Kremjið tómatana með höndunum og bætið út í ásamt vökvanum úr dósinni.
- Bætið kjúklingakraft, provance kryddi, hvítlauksdufti, 1 tsk af flögusalti og rjóma út í.
- Rífið helminginn af parmesan ostinum út í og stillið hitann á miðlungshita. Látið malla undir loki í 10 mín og svo án loks í 15-20 mín eða þar til kjötsósan hefur þykkst hæfilega.
- Sjóðið pasta eftir leiðbeiningum framleiðanda á meðan kjötsósan mallar en takið um 0,5-1 dl af pastavatninu frá áður en því er hellt frá pastanu.
- Hækkið hitann undir kjötsósunni og bætið smjörklípu út í sósuna. Bætið því næst nokkrum msk af pastavatninu út í kjötsósuna en látið sjóða vel á milli. Sterkjan í pastavatninu mun hjálpa til við að láta sósuna loða betur við pastað þegar öllu er blandað saman.
- Saxið steinselju og hrærið saman við kjötsósuna ásamt tagliatelle og rífið parmesan ost saman við.
- Berið fram með klettasalati og rifnum parmesan osti.