Sítrónu risarækju spaghetti
250 g spagettí
400 g litlar tígrisrækjur
salt og pipar
2 msk capers
1 dl olía
Börkur af 1 sítrónu
Safi úr 2 sítrónum
½ bolli ólífu olía
¾ rifinn parmesan ostur
½ bolli pasta soð
ferskt basil
Avókadó salsa
2 avókadó
10 kokteiltómatar
Safi úr ½ lime
1 msk kóríander, smátt saxað
Aðferð:
Spagettíið er soðið í miklu vatni þangað til það er orðið „al dente”, það er þegar spagettíið er næstum því tilbúið, smá stíft ennþá.
Capersið er þurrkað í eldhúspappír.
1 dl af olíu er hituð vel á lítilli pönnu og capersið djúpsteikt í olíunni í 2 mín eða þangað til það opnast. Það er svo tekið af pönnunni og auka olían tekin í burtu með því að þerra capersið aftur á eldhúspappír.
Risarækjurnar eru kryddaðar með salt og pipar og steiktar á pönnu þangað til þær eru bleikar í gegn.
Í stóra fallega skál rífið þið börkinn af 1 sítrónu og kreistið svo safann úr 2 sítrónum.
Bætið ½ bolla af ólífu olíu í skálina ásamt parmesan ostinum, hrærið saman.
Setjið spagettíið í skálina ásamt ½ bolla af pasta soði, hrærið saman.
Setjið ferskt basil á pastað eftir smekk.