Kjúklingur í rjómaostasósu með sveppum og estragon
Fyrir 3-4
Hráefni
600 g úrbeinuð kjúklingalæri
1-2 msk smjör til steikingar
1 lítill laukur, smátt skorinn
8-10 sveppir, skornir í sneiðar
2 dl rjómi
½ pakkning Philadelphia rjómaostur
1 msk dijon sinnep
3-4 tsk estragon
1 tsk kjúklingakraftur frá Oscar
Salt og pipar eftir smekk
Tagliatelline frá De Cecco
Aðferð
- Byrjið á því að steikja kjúklinginn upp úr smjöri og kryddið með salti og pipar. Steikið þangað til að hann er eldaður í gegn og takið til hliðar.
- Steikið lauk og sveppi upp úr smjöri á sömu pönnu.
- Bætið út í rjóma, rjómaosti, dijon sinnepi, estragoni, kjúklingakrafti, salti og pipar. Hrærið saman og látið malla í smá stund. Mæli með að smakka sósuna til.
- Sjóðið tagliatelline eftir leiðbeiningum á pakkningu.
- Blandið kjúklingnum saman við sósuna, berið fram með tagliatelline og njótið!