Margarita er klassískur kokteill sem samanstendur af tequila, Cointreau og lime safa. Einstaklega góður kokteill sem passar til dæmis mjög vel með mexíkóskri matagerð.
Hráefni:
4 cl Tequila
2 cl Cointreau
2 cl lime safi
Salt
Klaki
Aðferð:
- Kælið glasið með klökum á meðan drykkurinn er hristur.
- Setjið salt í undirskál, vætið brúnina á glasinu með lime og dýfið glasinu ofan í saltið.
- Blandið Cointreau, tequila og lime safanum saman með klaka í hristara og hristið vel og hellið svo drykknum í glasið.