Manhattan
Manhattan er klassískur kokteill búinn til úr viskí, sætum vermút og bitter. Meðfylgjandi er orginal uppskriftin þar sem notast er við amerískt viskí, ítalskan vermút og Angostura bitter.
Uppskrift:
6 cl Jim Beam bourbon
3 cl Antica Formula
2 skvettur af Angostura bitter
Mulinn klaki
Kokteilkirsuber á stilk
Aðferð:
Setjið mulinn klaka í kokteilhristara og hellið drykkjunum út í.
Hrærið drykkjunum varlega saman, lokið kokteilhristaranum og hellið í glas í gegnum sigtið til að skilja ísinn eftir. Bætið kirsuberinu út í og njótið!