Jólabrauð með rommi
Uppskrift: Linda Ben
Hráefni:
- 130 ml mjólk
- 1 bréf þurrger
- 400 g hveiti
- 1 msk vanillusykur
- 1 tsk kanill
- ½ tsk engifer krydd
- ¼ tsk salt
- 3 egg
- 3 tappar Stroh 60
- 150 g rjómaostur 18% fita
- 90 g brætt smjör, látið kólna
- 100 g rúsínur
- 100 g þurrkuð trönuber
- 125 ml Stroh 60
Aðferð:
- Byrjið á að velgja mjólkina í potti eða örbylgjuofni, setjið gerið útí og blandið saman, látið standa á meðan þið gerið skref 2.
- Setjið hveiti í skál ásamt kryddi og vanillusykri.
- Hellið mjólkinni út í hveitið og blandið saman. Bætið einnig útí 3 eggjum, Stroh, rjómaosti og kældu bræddu smjöri.
- Hnoðið deigið vel saman í hrærivél og látið svo hefast í 2 tíma. Hefjið strax skref 5 áður en þið bíðið eftir hefuninni.
- Setjið rúsínur og þurrkuð trönuber í pott ásamt romminu, látið sjóða á lágum hita í um það bil 2 mín. Látið þetta svo kólna inn í ísskáp á meðan deigið hefast.
- Kveikið á ofninum, stillið á undir yfir og 180ºC.
- Þegar degið er búið að hefast sigtiði frá rommið af rúsínunum og trönuberjunum og setjið berin í deigið, hnoðið vel saman við.
- Smyjið hringlaga form vel með smjöri og setjið deigið í formið.
- Bakið í um það bil 50 mín eða þangað til það er bakað í gegn og orðið gullið brúnt.
- Sigtið flórsykur yfir brauðið.