Sérrí Triffli
Uppskrift: Linda Ben
Hráefni:
- Hvítur svampbotn (kaupið tilbúinn, notið kökumix eða notið uppskriftina sem þið finnið hér)
- Jarðaberja sulta
- 6 msk Harvey’s Bristol Cream
- 300 g fersk jarðarber
- 4 eggjarauður
- 4 tsk kornsterkja eða kartöflumjöl
- 2 msk sykur
- 470 ml nýmjólk
- 1 tsk vanilludropar
- Rjómi
- Sítrónubörkur af 1 sítrónu
Aðferð:
- Bakið svampbotn samkvæmt leiðbeiningum og kælið hana svo. Á meðan kakan er inn í ofni, útbúið þá custard-ið.
- Blandið saman eggjarauðum, kornsterkju og sykri.
- Hitið mjólkina í potti þangað til hún er orðin volg, hellið henni þá í mjórri bunu út í eggjarauðu blönduna í mjórri bunu á meðan þið hrærið.
- Hellið svo eggja-mjólkurblöndunni aftur ofan í pottinn og hitið að suðu á meðan þið hrærið stanslaust í pottinum. Slökkvið strax undir pottinum þegar suðan er komin upp og blandan er orðin þykk.
- Setjið kremið í skál og leggið plastfilmu þétt við kremið, geymið inn í ísskáp þangað til komið er að því að raða saman eftirréttinum.
- Skerið svampbotninn þvert í tvennt, smyjið jarðaberja sultu á annan helminginn og lokið kökunni aftur.
- Með dessert glasinu, skerið út kökuna eins og sjá má á mynd hér fyrir ofan, hvolfið glasinu og þrífið glasbrúnina með hreinni tusku. Ef þið viljið bera réttinn fram á disk þá er hægt að nota smákökuform til að skera út kökuna.
- Setjið 1 msk af sérrí á hverja köku, reynið að bleyta hana allstaðar jafn mikið (notið teskeið ef ykkur finnst betra en þá þarf 3 teskeiðar)
- Skerið jarðaberin í sneiðar (skiljið 6 heil jarðaber eftir sem skraut) og skiptið þeim á milli glasa. Raðið nokkrum jarðaberjum á hlið kökunnar.
- Setjið 2-3 msk af custard í hvert glas.
- Þeytið rjómann og setjið 1-2 msk af rjóma í hvert glas.
- Setjið heilt jarðarber ofan í hvert glas og skreytið með rifnum sítrónuberki.