Espresso Martini
Hráefni:
50 ml af Vodka
25 ml Galliano Vanilla
1 espresso skot
25 ml sykursýróp (hægt að búa hann til ef þið eigið hann ekki, leysa 1 dl af sykri upp í heitu vatni og kæla í ísskáp)
Aðferð:
1. Kælið kokteilglasið með klökum á meðan drykkurinn er blandaður.
2. Setjið öll hráefnin í hristara og hristið vel.
3. Takið klakana úr glasinu áður en þið hellið drykknum út í glösin.
4. Skreytið með þeyttum rjóma og dökku súkkulaði.