Grillaður kjúklingur á spænska vísu
Uppskrift: Marta Rún Ársælsdóttir
Hráefni:
1.6 kg kartöflur, skrældar og skornar niður í 2.5 cm sneiðar
4 sítrónur
1 lúka af steinselju
2 kg heill kjúklingur
300 g Chorizo pulsa
2 hvítlauksgeirar
Olía
Salt & pipar
Aðferð:
Forhitið ofninn í 220°.
Sjóðið kartöflur og 2 sítrónur saman í vatni í 5 mínútur. Sigtið vatnið frá og búið til lítil göt á sítrónurnar og komið þeim fyrir inní kjúklingnum.
Skerið stönglana af steinseljunni og komið þeim fyrir í kjúklingnum. Saltið og piprið.
Skerið Chorizo pulsurnar í ½ cm sneiðar.
Finnið til eldfast mót, leggið kartöflurnar og ¾ af Chorizo pulsunum í fatið ásamt saxaðri steinselju og olíu.
Eldið kjúklinginn í ofni í 1 klukkustund og 20 mínútur.
Raðið restinni af pulsunum ofan á kjúklinginn síðustu 15 mínúturnar af eldunartímanum.
Dressing:
Rifið niður sítrónubörk af 2 sítrónum, saxaðri steinselju smátt, pressið hvítlauk og bætið við olíu, salti og pipar.
Berið kjúklinginn fram með klettasalati eða ferskum tómötum og rauðlauk.
Vinó mælir með Muga Reserva með þessum rétt.