Í hverjum mánuði koma ný vín til reynslusölu í Vínbúðunum í Kringlunni, Heiðrúni, Skútuvogi og Hafnarfirði. Fyrir ykkur sem hafið gaman að því að breyta til og prófa ný vín mælum við með að þið prófið þessi neðan greindu vín, en þau voru einmitt að byrja í reynslusölu Vínbúðanna í byrjun mánaðarins.
Cune Gran Reserva
Bragðlýsing: Ljóskirsuberjarautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Kirsuber, eik, laufkrydd, lyng.
Styrkleiki: 13,5% vol
Land: Spánn
Framleiðandi: CVNE
Þrúga: Tempranillo
Verð: 3.499 kr.
Passar með: Hér er um að ræða kröftugt vín, með þéttu berjabragði og nokkuð tannískt. Passar vel með nautakjöti, villibráð, pottréttum og hörðum ostum.
Cune Blanco
Bragðlýsing: Fölstrágult. Létt meðalfylling, ósætt, fersk sýra. Epli, hýði, sveppir.
Styrkleiki: 13% vol
Land: Spánn
Upprunastaður: Rioja
Framleiðandi: CVNE
Þrúga: Viura
Verð: 1.999 kr.
Passar með: Meðalfyllt vín, best sem matarvín. Gott með fiskréttum, skelfiski, ljósu kjöti og pasta.
La Chamiza Malbec Polo Legends blár miði
Bragðlýsing: Fjólurautt. Þétt fylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Brómber, kirsuber, laufkrydd.
Styrkleiki: 13,5% vol
Land: Argentína
Hérað: Mendoza
Upprunastaður: Mendoza
Framleiðandi: Finca La Chamiza
Verð: 2.499 kr.
Passar með: Þetta vín hentar með flestum mat. Þetta eru nokkuð bragðmikið og gott með með rauðu kjöti og ostum.
La Chamiza Malbec hvítur miði
Bragðlýsing: Rúbínrautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Trönuber, bláber.
Styrkleiki: 12,5% vol
Land: Argentína
Framleiðandi: Finca La Chamiza
Þrúga: Malbec
Verð: 1.899 kr.
Passar með: Þetta vín hentar með flestum mat. Þetta eru nokkuð bragðmikið og gott með pastaréttum, pizzum, rauðu kjöti og ostum.
Domaine Des Malandes Petit Chablis
Bragðlýsing: Föllímónugrænt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra. Vínber, melóna, pera.
Styrkleiki: 12% vol
Land: Frakkland
Framleiðandi: Domaine des Malandes
Þrúga: Chardonnay
Verð: 2.199 kr.
Passar með: Meðalfyllt vín, best sem matarvín. Gott með fiskréttum, skelfiski, ljósu kjöti og pasta.
Los Condes Gran Seleccion
Bragðlýsing: Kirsuberjarautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Þroskuð kirsuber, barkarkrydd, tunna, skógarbotn.
Styrkleiki: 13,5% vol
Land: Spánn
Framleiðandi: Bodegas 1898
Þrúga: Tempranillo, Cabernet Sauvignon
Verð: 1.999 kr.
Passar með: Þetta vín hentar með flestum mat. Þetta eru nokkuð bragðmikið og gott með með rauðu kjöti og ostum.
Lamberti Santepietre Merlot
Bragðlýsing: Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling, ósætt, mild sýra, lítil tannín. Kirsuber, lyng, laufkrydd.
Styrkleiki: 12,5% vol
Land: Ítalía
Framleiðandi: Lamberti SPA
Þrúga: Merlot
Verð: 1.899 kr.
Passar með: Þetta vín hentar með flestum mat. Þetta eru nokkuð bragðmikið og gott með með rauðu kjöti og ostum.