Í hverjum mánuði koma ný vín til reynslusölu í Vínbúðunum í Kringlunni, Heiðrúni, Skútuvogi og Hafnarfirði. Fyrir ykkur sem hafið gaman að því að breyta til og prófa ný vín mælum við með að þið prófið þessi neðan greindu vín, en þau voru einmitt að byrja í reynslusölu Vínbúðanna í byrjun mánaðarins.
Pagos Del Galir Godello
Bragðlýsing: Ljóssítrónugult. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, höfugt. Stikilsber, ferskja, græn epli, hvít blóm.
Styrkleiki: 13,5% vol
Land: Spánn
Hérað: Galisía
Framleiðandi: Virxen de Galir
Þrúga: Godello
Verð: 2.199 kr.
Passar með: Hentar vel fiski, grænmetisréttum og ljósu fuglakjöti.
Geyser Peak Cabernet Sauvignon
Bragðlýsing: Kirsuberjarautt. Þétt fylling, ósætt, mild sýra, miðlungstannín. Sólber, skógarber, vanilla, sólbakað.
Styrkleiki: 14% vol
Land: Bandaríkin
Framleiðandi: Geyser Peak Winery
Þrúga: Cabernet Sauvignon
Verð: 2.199 kr.
Passar með: Hér er um að ræða kröftugt vín, með þéttu berjabragði og nokkuð tannískt. Passar vel með nautakjöti, villibráð, pottréttum og hörðum ostum.
Hardys Nottage Hill Cabernet Sauvignon Shiraz
Bragðlýsing: Dökkkirsuberjarautt. Þétt meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Dökk ber, jörð, minta.
Styrkleiki: 14% vol
Land: Ástralía
Framleiðandi: Thomas Hardy & Sons
Þrúga: Cabernet Sauvignon, Syrah
Verð: 2.199 kr.
Passar með: Þetta vín hentar best með flestum mat. Það er nokkuð bragðmikið og gott með rauðu kjöti og ostum.
Geyser Peak Zinfandel
Bragðlýsing: Rúbínrautt. Meðalfylling, sætuvottur, mild sýra, lítil tannín. Sultuð plóma, brómber, vanilla.
Styrkleiki: 13,5% vol
Land: Bandaríkin
Framleiðandi: Geyser Peak Winery
Þrúga: Zinfandel
Verð: 2.199 kr.
Passar með: Þetta vín hentar best með flestum mat. Það er nokkuð bragðmikið og gott með rauðu kjöti og ostum.