Vegan Vín
Vín eru í sjálfu sér náttúruafurð enda í rauninni gerjaður vínberjasafi. Það mætti því ætla að þau flokkuðust sjálfkrafa sem “vegan” afurð en það er ekki alltaf svo einfalt. Þannig er mál með vexti að vínframleiðendur komast ekki hjá því að hreinsa vínin áður en þau eru sett á flöskur. Til þess eru ýmsar aðferðir, meðal annars að sía þau og svo að “fínísera” þau (e. wine fining). Þá er ákveðnum efnum bætt út í vínið í örlitlu magni og viðkomandi efni dregur í sig bakteríur, óhreinindi og aðra aðskotahluti. Þessi efni eru oftast lífræn efni eða steinefni. Eitt algengasta steinefnið er bentónít, en það er náttúrulegur leir sem notaður er til að fella út ger og ýmis prótein sem gera gerjaðan vökva skýjaðan. Meðal lífrænu efnanna má nefna eggjahvítu, mjólkurkasín og gelatín og þar staldra vegan-neytendur við, enda strangt til tekið um dýraafurðir að ræða. Í dag er hins vegar hægt að fá vegan-vín með viðeigandi merkingum.
Fyrir áhugasama, tók Vinó saman nokkur vel valin vegan vín sem fást í hillum Vínbúðanna;
Adobe Chardonnay
Fölsítrónugult. Létt meðalfylling, ósætt, fersk sýra. Sítrus, melóna, epli. Verð 1.999 kr.
Adobe Cabernet Sauvignon
Rúbínrautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Sólber, minta, papríka. Verð 1.999 kr.
Adobe Rose
Ljóslaxableikt. Létt fylling, sætuvottur, mild sýra. Jarðarber, lauf. Verð. 1.999 kr.
Adobe Cabernet Sauvignon, Syrah & Carmenere
Kirsuberjarautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Dökk ber, plóma, laufkrydd. Verð 1.999 kr.
Emiliana Brut Organic
Fölgrænt. Ósætt, létt freyðing, sýruríkt. Límóna, sítróna, ananas, grænjaxlar. Verð. 2.399 kr.
Camino Dominio Romano Tunto Fino
Dökkfjólurautt. Þétt meðalfylling, ósætt, fersk sýra, þétt tannín. Rauð og dökk ber, krydd. Höfugt. Verð 2.999 kr.
Emiliana Coyam
Dökkrúbínrautt. Þétt fylling, ósætt, fersk sýra, þétt tannín. Höfugt. Dökk ber, plóma, vanilla, eik, jarðefni. Verð 3.499 kr.