Það er farið að skyggja á kvöldin, dagurinn er farinn að styttast jafnt og þétt og þá er fátt betra en að kveikja á kerti, hlusta á ljúfa tónlist og gera vel við sig í mat og drykk. Haustið er einmitt tími sælkera, ný uppskera kemur á markaðinn, ferskt grænmeti og nýtt kjöt. Í Mið- og Suður-Evrópu eru uppskeruhátíðir vikulegir viðburðir yfir haustið og er nýrri uppskeru gjarnan fagnað með veisluhöldum og fjöri. Hvernig væri að gera slíkt hið sama og njóta gjafa nátttúrunnar með glasi af góðu víni? Vinó tók saman nokkur spennandi vín sem gaman er að prófa með haust uppskerunni.
Adobe Reserva Sauvignon Blanc
Bragðlýsing: Ljóslímónugrænt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra. Límóna, sólberjalauf, steinefni.
Styrkleiki: 12% vol
Land: Chile
Hérað: Valley De Central
Framleiðandi: Vinedos Emiliana S.A.
Þrúga: Sauvignon Blanc
Verð: 2099 kr.
Passar með: Fjölbreyttum grænmetisréttum, t.d. salötum eða rótargrænmetisréttum en það rennur líkja ljúflega niður eitt og sér.
Willm Riesling Reserve
Bragðlýsing: Ljóssítrónugult. Létt fylling, ósætt, fersk sýra. Sítróna, græn epli, ferskja, olía.
Styrkleiki: 12% vol
Land: Frakkland
Hérað: Alsace
Framleiðandi: Willm
Þrúga: Riesling
Verð: 2599 kr.
Passar með: fjölbreyttum grænmetisréttum, t.d. salötum eða rótargrænmetisréttum. Passar líka vel með ljósu kjöti.
Adobe Reserva Pinot Noir
Bragðlýsing: Ljóskirsuberjarautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Hindber, jarðarber, laufkrydd, skógarbotn.
Styrkleiki: 13,5% vol
Land: Chile
Hérað: Valley De Central
Framleiðandi: Vinedos Emiliana S.A.
Þrúga: Pinot Noir
Verð: 2099 kr.
Passar með: gratíneruðum grænmetisréttum eða salötum og rótargrænmeti.
Muga White
Bragðlýsing: Föllímónugrænt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra. Sítrus, gul epli, hunangsmelóna.
Styrkleiki: 13% vol
Land: Spánn
Hérað: Rioja
Framleiðandi: Bodegas Muga
Þrúga: Viura 90, Malvasia 10%
Verð: 2799kr.
Passar með: fjölbreyttum grænmetisréttum, smárréttum og hentar líka vel með fiski og skelfiski.
Ramon Roqueta Garnacha
Bragðlýsing: Rúbínrautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, mild tannín. Höfugt. Brómber, plóma, laufkrydd, lyng.
Styrkleiki: 14% vol
Land: Spánn
Hérað: Catalunya
Framleiðandi: Bodegas 1898 S.L
Þrúga: Garnacha
Verð: 1899kr.
Passar með: Hentar sérstaklega vel með grænmetisréttum, bökuðu eggaldin með bræddum osti og passar líka mjög vel með pottréttum og kjúklingi.
Saint Clair Sauvingon Blanc
Bragðlýsing: Föllímónugrænt. Létt meðalfylling, ósætt, fersk sýra. Stikilsber, sólberjalauf, græn epli.
Styrkleiki: 12,5% vol
Land: Nýja Sjáland
Hérað: Marlborough
Framleiðandi: Saint Clair Family Estate.
Þrúga: Sauvignon Blanc
Verð: 2599 kr.
Passar með: fjöldbreyttum grænmetis og smárréttum, fiskréttum, skelfiski og ljósu kjöti.
Adobe Reserva Merlot
Bragðlýsing: Kirsuberjarautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Paprika, plóma, trönuber.
Styrkleiki: 13,5% vol
Land: Chile
Hérað: Valley De Central
Framleiðandi: Vinedos Emiliana S.A.
Þrúga: Merlot
Verð: 2099 kr.
Passar með: grænmetisréttum sem innihalda brauð og ost. Prófið til dæmis með grænmetislasagna eða með bökuðu eggaldin með mozzarella osti og parmesan.