Sumar Margaríta
Sumar Margaríta Hráefni: 3 cl Cointreau 5 cl Tequila 2 cl Limónusafi 4 fersk jarðarber Aðferð: Vætið glasabrúnina með límónusafa og dýfið í flögusalt. Setjið, Cointreau, Tequila, límónusafa og jarðarber í kokteilhristara. Merjið allt saman og bætið svo ísmolum útí og hristið vel. Skreytið með myntulauf.