Ceasar salat með beikoni og heimagerðum brauðteningum
Fyrir 2
Hráefni
Kjúklingabringur, 2 stk
Töfrakrydd, 1 msk / Pottagaldrar
Romaine salat, 1 meðalstór haus
Kirsuberjatómatar, 80 g
Rauðlaukur, 1 lítill
Súrdeigsbrauðsneiðar, 2 stk
Hvítlauksduft, 0,5 tsk
Beikonsneiðar, 6 stk
Ansjósur, 2 stk / Fást í melabúðinni
Hvítlaukur, 4 g / Eitt rif
Parmesan, 15 g + meira eftir smekk yfir salatið
Japanskt majónes, 60 g / Má vera venjulegt
Hvítvínsedik, 0,5 msk
Aðferð:
Stillið ofn á 180°C með blæstri.
Veltið kjúklingabringum upp úr smá olíu og kryddið með töfrakryddi. Látið marinerast á meðan unnið er í öðru.
Dreifið beikonsneiðum yfir ofnplötu með bökunarpappír og bakið í miðjum ofni í 12-15 mín (fylgist vel með svo beikonið brenni ekki við).
Rífið súrdeigsbrauðið í bita og veltið upp úr ólífuolíu, salti og hvítlauksdufti. Dreifið yfir ofnplötu og bakið í neðstu grind í ofni í um 10 mín eða þar til brauðið er orðið fallega gyllt.
Rífið 15 g af parmesan með fínu rifjárni og pressið hvítlauksrif. Maukið saman ansjósur, rifinn parmesanost, pressaðan hvítlauk, majónes, hvítvínsedik og 0,5 msk af vatni með töfrasprota þar til allt hefur samlagast að fullu. Smakkið til með salti ef þarf.
Hitið smá olíu á pönnu við meðalháan hita og steikið kjúklingabringurnar í 2,5 mín á hvorri hlið. Færið kjúklinginn í eldfast mót og bakið í miðjum ofni í 15 mín eða þar til kjúklingurinn er hvítur í gegn og fulleldaður.
Leyfið kjúklingnum að hvíla og sneiðið ekki fyrr en rétt áður en maturinn er borinn fram so hann haldist safaríkur.
Saxið romaine salat gróflega, sneiðið rauðlauk, skerið tómata í bita, skerið beikon í bita.
Setjið romaine salat, rauðlauk, brauðteninga, tómata og beikon í stóra skál ásamt rúmlega helmingnum af dressingunni og blandið vel saman. Dreifið kjúkling yfir og rífið parmesanost yfir eftir smekk.
Berið fram með restinni af dressingunni til hliðar.