Qesadilla Hringur
Uppskrift gerir 30 quesadilla rúllur
Hráefni
4-5 dl rifinn kjúklingur (ég keypti heilan kjúkling og reif hann niður)
10 sneiðar beikon
1 ½ dl blaðlaukur
2 tómatar
3 pkn hveititortillur frá Mission
1 krukka salsasósa frá Mission
1 krukka ostasósa frá Mission
2 dl Havarti ostur með jalapeno (má nota annan ost)
2-4 dl rifinn mozzarella ostur
2 dl rifinn cheddar ostur
Ferskt kóríander
Avókadó sósa
3 avókadó
1 dl sýrður rjómi
Safi úr 1 lime
½ tsk salt
¼ tsk pipar
¼ tsk laukduft
¼ tsk hvítlauksduft
Chili flögur eftir smekk
Aðferð
Byrjið á því að leggja beikonið á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í 10-12 mínútur við 200°C eða þar til beikonið er orðið stökkt.
Skerið blaðlauk, tómata og beikon smátt.
Setjið rifinn kjúkling í skál og kryddið. Bætið út í blaðlauknum, tómötunum, beikoni, 2 dl rifnum Havarti osti með jalapeno, 1 dl rifnum cheddar osti og salsa sósunni. Blandið vel saman.
Skerið tortillurnar til helminga og smyrjið með rúmlega 1 tsk af ostasósu. Dreifið rifnum mozzarella osti yfir og rúmlega 1 msk af kjúklingablöndunni á alla helmingana. Rúllið tortillunum upp þannig að þær mynda kramarhús.
Notið hringlótt eldfast mót eða bökunarpappír. Setjið þá sósuskál sem þið ætlið að nota í miðjuna. Raðið tortilla rúllunum upp í hring.
Blandið saman 1 dl cheddar ost og 1 dl mozzarella ost. Dreifið helmingnum af ostinum yfir tortilluhringinn og raðið svo restinni af tortillurúllunum ofan á þannig að það myndist tvær hæðir. Dreifið svo restinni af ostinum yfir.
Takið sósuskálina frá og bakið í ofni við 190°C í 10-12 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.
Blandið öllum hráefnunum í sósuna saman með töfrasprota eða matvinnsluvél. Hellið í sósuskálina og setjið hana í miðjuna á tortilluhringnum. Dreifið kóríander yfir eftir smekk og njótið.