Spaghetti Cacio E Pepe
Uppskrift: Marta Rún Ársælsdóttir
Hráefni:
400 g spaghetti
Olífu olía
1 pakki beikon
4 hvítlauksgeirar
1 tsk chilliflögur
1 tsk svartur pipar
Safi út 1/2 sítrónu
1 og 1/2 bolli rifinn parmesan ostur
3-4 lúkur klettasalat
Aðferð:
- Sjóðið spaghetti eftir leiðbeiningum.
- Takið frá 1 bolla af pastavatni eftir suðu og geymið.
- Steikið beikonið, bætið við olíu, hvítlauk, chilli og svörtum pipar og steikið saman í smá stund.
- Bætið við sítrónu safa og spaghetti út á pönnuna og blandið öllu saman.
- Rífið parmesan ostinn yfir í nokkrum skrefum og blandið saman ásamt nokkrum msk af pastavatni. Bætið klettasalati við í lokin og saltið og piprið eftir smekk.
- Berið réttinn fram með parmesan osti og chilliflögum.
Vinó mælir með Muga White með þessum rétt.