Nektarínu- og Cointreau Tiramisu
Uppskrift fyrir 8 manns
Hráefni:
800 g nektarínur án steina og skornar í sneiðar
2 kvistar af myntu
10 cl vatn
30 g sykur
½ vanillustöng
3 cl Cointreau
3 eggjarauður
2 msk. sykur
1 sítróna (nota börkinn)
225 g mascarpone ostur
150 g Philadelphia rjómaostur
3 eggjahvítur
1 klípa af salti
2 msk. sykur
200 g Ladyfinger kex
Aðferð:
- Setjið nektarínur, vatn, sykur, myntu og vanillu í pott. Lokið og látið malla yfir lágum hita í um það bil 10 mínútur þar til að blandan er orðin að sírópi.
- Hellið sírópinu í skál. Látið nektarínurnar og sírópið kólna, setjið um 10 sneiðar af nektarínum yfir á aðra hliðina í pottinum og fjarlægið myntuna.
- Bætið Cointreau líkjörnum síðan saman við sírópið.
- Hrærið eggjarauður, sykur og sítrónubörkinn saman í skál þar til blandan verður hvít.
- Hrærið svo mascarpone og Philadelphia ostinum saman við eggjarauðu blönduna.