Cointreau peruterta
Hráefni:
1 pakki af sætabrauðs smjördeigi (einnig hægt að búa til sitt eigið smjördeig)
3 perur
200 g dökkt súkkulaði
1 egg
20 cl rjómi
30 g sykur
30 g smátt malaðar möndlur
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180 ° C og bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði.
- Leggið deigið í kökuform og gatið botninn á deiginu með gafli á nokkrum stöðum.
- Af hýðið perurnar og skerið þær niður í mjóa strimla.
- Hellið súkkulaðinu yfir botninn og setjið perurnar ofan á.
- Þeytið eggið með rjómanum og bætið möndlunum og sykrinum saman við.
- Hellið blöndunni yfir perurnar og bakið í um 35 mínútur.