Tiramisu með appelsínulíkjör
Uppskrift: Linda Ben
Hráefni:
- U.þ.b. 20 stk Lady Finger kexkökur (magn fer eftir hvaða form er notað)
- 3 egg, aðskilin í eggarauður og eggjahvítur
- 50 g sykur
- Kornin úr ½ vanillustöng eða 1 tsk vanilludropar
- 250 g mascapone ostur
- 150 ml espresso
- ½ dl Cointreau
- Dökkt kakó duft
Aðferð:
- Hellið upp á espresso kaffi og leyfið því að kólna.
- Aðskiljið eggin, þeytið eggjarauðurnar með sykrinum og vanilludropum þangað til blandan verður létt og ljós u.þ.b. 5 mín.
- Bætið mascapone ostinum út í og þeytið saman við.
- Í aðra skál þeytiði eggjahvíturnar þangað til topparnir verða milli stífir (ekki eins stífir og þegar verið er að gera marengs)
- Bætið eggjahvítunum rólega saman við með sleikju.
- Bætið Cointreau út í kaffið og setjið í lítið ílát með flötum botni, raðið nokkrum Lady Finger kexkökum ofan í formið og leyfið kaffinu að fara vel inn í kexið. Raðið helmingnum af kexkökunum í botninn á forminu sem þú ætlar að nota t.d. glös eða kökuform. Setjið helminginn af eggjablöndunni yfir. Raðið svo kaffidrekktu kexinu ofan á og setjið restina af eggjablöndunni næst yfir.
- Sigtið kakó yfir og geymið inn í ísskáp í minnst 4 klst.