Saltfiskur með portúgölsku ívafi
Uppskrift: Linda Ben
Hráefni:
- 700 g saltfiskhnakkar
- um það bil 10-15 forsoðnar kartöflur
- 30 g smjör
- 1 lítill laukur
- 3 hvítlauksrif
- 1 dl svartar ólífur, skornar í sneiðar.
- ½ hvítlauksostur
- ½ poki rifinn ostur
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 200°C.
- Val: Setjið vatn í pott, setjið saltfiskinn í pottinn og látið suðuna koma upp. Látið fiskinn standa í pottinum í 3 mín.
- Á meðan suðan er að koma upp á fiskinum, skerið laukinn smátt niður, steikið hann á pönnu við vægan hita svo hann verði glær, rífið hvítlaukinn eða pressið í gegnum hvítlaukspressu og steikið á pönnunni í 1 mín.
- Skerið kartöflurnar í 4 hluta og setjið ofan í eldfast mót.
- Rífið saltfiskinn gróft niður, annað hvort soðinn eða hráan, ofan á kartöflurnar.
- Dreifið lauknum yfir fiskinn.
- Skerið smjörið í litla bita og dreifið yfir eldfasta mótið ásamt ólífunum.
- Rífið hvítlauksost og setjið yfir fiskinn ásamt rifnum osti.
- Bakið inn í ofni í 20 mín, stillið ofninn á grillið (mikilvægt að fylgjast vel með réttinum inn í ofninum þegar stillt er á grillið) og bakið í um það bil 2 mín eða þangað til osturinn er byrjaður að brúnast fallega.
Vinó mælir með Flor De Crasto með þessum rétt.