Spænskur þorskréttur
Uppskrift: Marta Rún Ársælsdóttir
Hráefni:
- 1 Rauðlaukur
- 3 Hvítlauksgeirar
- 2 Pakkar kirsuberjatómatar eða um 750g
- Þorskhnakkar skornir í jafna 6 bita
- 6 Hráskinkusneiðar
- Grænar ólífur eftir smekk
- Steinselja
- Ólífuolía
- Salt & pipar
Aðferð:
Hitið ofninn í 200°.
Skerið rauðlaukinn og hvítlaukinn í þunnar sneiðar og tómatana til helminga og setið í eldfast mót ásamt grænum ólífum, 4 msk af olífu olíu, salti og pipar.
Bakið í ofni í 15 mínútur.
Vefjið parmaskinku utan um fiskinn og leggið hann ofan á grænmetið og bakið í aðrar 15 mínútur eða þar til parmaskinkan orðin vel stökk.
Stráið steinselju yfir og berið fram með góðu brauði.
Vinó mælir með Pares Balta Blanc de Pacs með þessum rétt.