Hunangs-sesam lax með Pak Choi salati og ristuðum möndlum
Fyrir 2
Hráefni
Hunangs sesam lax:
Lax, 400 g
Hunang, 1 msk
Sesamolía, 1 msk
Hvítlaukur, 1 lítið rif
Engifermauk, 0,5 tsk
Ristuð sesamfræ, 2 tsk
Pak choi salat með sesamdressingu:
Möndlur, 30 g
Sojasósa, 1,5 msk
Púðursykur, 2 msk
Ólífuolía, 2 msk
Sesamolía, 1 tsk
Hrísgrjónaedik, 2 tsk (eða lime safi)
Ristuð sesamfræ, 2 msk
Íslenskt Pak Choi, 60 g
Agúrka, 60 g
Gulrætur, 60 g
Kóríander, 5 g
Vorlaukur, 1 stk
Aðferð
- Stillið ofn á 180°C með blæstri.
- Grófsaxið möndlur og ristið á heitri pönnu. Setjið ristuðu möndlurnar í skál og veltið upp úr 1 msk af sojasósu. Geymið.
- Hrærið saman hunang, sesamolíu, 1 pressað hvítlauksrif og 0,5 tsk engifermauk (eða ferskan rifinn engifer).
- Nuddið laxinn með smá olíu og saltið aðeins. Hitið olíu á pönnu við meðalháan hita og steikið laxinn í um 2,5 mín á kjöthliðinni. Færið laxinn í olíusmurt eldfast mót og smyrjið með hunangs-sesam marineringunni. Bakið laxinn í miðjum ofni í 6-8 mín og stráið sesamfræjum yfir laxinn þegar hann kemur úr ofninum.
- Búið til salatdressinguna með því að hæra saman púðursykur, ólífuolíu, sesamolíu, hrísgrjónaedik, 0,5 msk sojasósu og ristuð sesamfræ.
- Grófsaxið Pak Choi, skerið agúrku í bita og/eða þunna strimla, rífið gulrót og/eða skerið í þunna strimla, saxið kóríander og sneiðið vorlauk. Setjið all grænmetið saman í skál ásamt ristuðu möndlunum og veltið upp úr salatdressingunni. Smakkið til með salti.
- Berið fram með hrísgrjónum.