Hægeldaðir lambaskankar í rauðvínssósu
Uppskrift: Marta Rún Ársælsdóttir
Hráefni:
- 4 lambaskankar
- salt og pipar
- 3 tsk olífuolía
- 1 bolli smátt saxaður laukur
- 1 bolli smátt saxaðar gulrætur
- 1 bolli smátt saxað sellerí
- 3 hvítlauksgeirar
- 2 og hálfur bolli rauðvín (þú vilt frekar hafa rauðvín sem eru aðeins þyngri)
- 800 g hakkaðir tómatar í dós
- 2 msk tómatapúrra
- 2 bollar kjúklingasoð
- 2 tsk þurrkað timían
- 2 lárviðarlauf
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°. Þurrkið lambaskankana aðeins með pappír og saltið og piprið þá alla vel.
Finnið til stóran pott eða stórt fat með loki. Steikið lambaskankana á háum hita þangað til þeir eru orðnir brúnir á öllum hliðum og færið yfir á disk. Lækkið hitann í miðlungshita og bætið við smá olíu. Steikið laukinn og hvítlaukinn í pottinum í 2 mínútur og bætið síðan gulrótunum og selleríinu ofan í pottinn og steikið í aðrar 5 mínútur.
Bætið við rauðvíninu, kjúklingasoðinu, tómötunum, tómatapúrrunum, timían og lárviðarlaufinu. Hrærið og blandið saman. Bætið síðan lambaskönkunum í pottinn og fáið allt til að byrja að malla saman. Setjið lok á pottinn og setjið inní ofn í 2 klst og aðrar 30 mínútur án þess að hafa lokið.
Setjið kartöflumús á disk og leggið lambaskankann ofan á. Kreistið vel allt grænmetið og rauðvínssósuna sem er eftir í pottinum og hrærið vel saman og smakkið hvort það vanti smá salt eða pipar. Hellið síðan sósunni yfir í sósufat eða skál og hellið yfir lambaskankann.
Vinó mælir með Cune Reserva með þessum rétt.