Kjúklinga Supernachos
Uppskrift: Linda Ben
Hráefni:
- 200 g Nachos maís flögur
- 2 stk hægeldaðar Ali sous vide kjúklingabringur í Rodizio marineringu
- 1 ½ dl gular baunir
- 200 g rifinn ostur
- 2 tómatar
- ½ rauðlaukur
- 2 lítil avocadó
- 1 jalapeno
- 1 dós Habanero sýrður rjómi
Aðferð:
- Kveikið á ofninum, stillið á 200°C.
- Setjið nachos flögur í stórt form þannig það dreifist vel úr þeim.
- Skerið kjúklingabringurnar í fremur litla bitastóra bita.
- Dreifið gulu baununum yfir og ostinum, bakið í 20 mín eða þar til osturinn byrjar að brúnast örlítið.
- Skerið tómatana, rauðlaukinn og avocadóin smátt niður og dreifið yfir. Skerið jalapenóið í sneiðar og dreifa yfir ásamt habaneró sýrða rjómanum.