Fylltar kjúklingabringur með hráskinku, mosarella og basil
Uppskrift: Linda Ben
Fylltar kjúklingabringur með hráskinku, mosarella og basil
- 4 stk kjúklingabringur
- 8 sneiðar af hráskinku
- 8 litlar mozarella kúlur
- 1 stórt búnt ferskt basil
- Salt og pipar
Aðferð:
- Skerið inn í þykkasta endann á kjúklingabringunni þannig að það myndist vasi inn í henni, reynið að gera vasann eins djúpann og hægt er án þess að gata hann (ekkert stórmál samt ef það kemur gat á hinn endann, í mesta lagi lekur smá ostur út)
- Troðið inn í vasann ½ sneið af hráskinku, 2 mosarella kúlum og nokkrum basil laufum.
- Vefjið 1 ½ hráskinku utan um kjúklingabringuna, mér fannst best að vefja heilu sneiðinni yfir þykka hluta bringunnar og hálfu utan um þunna hlutann.
- Piprið bringurnar vel og saltið örlítið en ekki mikið þar sem skinkan er nú þegar mjög sölt.
- Stillið ofninn á 200°C.
- Steikið bringurnar á pönnu þangað til þær eru lokaðar allan hringinn, setjið þær svo í eldfast mót og inn ofn, haldið áfram að baka þær í 20 mín. Berið fram til dæmis með fersku salati og sætum kartölflum, notið soðið sem kemur af eldfasta mótinu sem sósu, það er æði.
Vinó mælir með Cune Crianza með þessum rétt.